laugardagur, mars 22, 2008

Ég er ekki til!!!

Eða þá er ég palli einn í heiminum.

Ég ætlaði í eitt skipti já bara eitt skipti að skila skattframtali á íslandi á réttum tíma(síðasti skilafrestur 26 mars), fór ég þá inná www.RSK.is með góðri samvisku og miklum baráttu hug og með sól í hjarta eins og góður íslenskur samviskusamur borgari. Ég vissi að ég væri búinn að týna lykillorðinu mínu og þyrfti því að sækja um það aftur og ætlaði ég að láta senda það rafrænt á netbankan minn, það eina sem ég þarf að gera er að senda inn Kennitöluna mína og svo sendir Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi Karl Lauritzson mér veflykilinn minn rafrænt ok jæja ég fyllti inn kennitölunna mína samviskusamlega 201279-3999 en hvað gerist?



Hum kennitala mín finnst ekki á skrá jæja hvað gæt orsakað það? jæja hum þá sendi ég bara fyrirspurn og svo sækji ég um frest á að skila

Fyrirspurninn sem ég sendi:


Svo var það að sækja um frestsamvisku samlega



JÁ ÉG VEIT AÐ HEL... AND...DJÖ... KENNITALANN MÍN FINNST EKKI. Rólegur Sindri rólegur!!! anda inn anda út hvað gæti orsakað því að kennitalann finnst ekki?

Möguleiki 1.



Ok sem sagt það gæti verið að ég þyrfti að sækja um nýjan veflykill, en hvernig er það hægt ef HEL..... DJÖ... AND... HÓ..... ME......#$/((w#$ KENNITALAN ER EKKI Á SKRÁ. Sindri rólegur ekki æsa þig svona, ok hver er möguleiki númer tvö...

Möguleiki 2.



hum, ég byrja að lesa "Ef slegin hefur verið inn kennitala einstaklings sem lést á árinu 2007....." Eitthvað finnst mér þetta skrítið ég er ekki að skilja.... ok lesa aftur "Ef slegin hefur verið inn kennitala einstaklings sem lést á árinu 2007...." Er ég látinn er ég að ganga í gegnum Patrick Swayze Ghost sindróminn( ég meina Sindrómur er nú nálagt nafninu mínu SINDRómur) eða er ég Patrick Swayze og með krabameinn í brisinu.... púff ég er anski smeikur ætli hann setji baby in a corner núna....

En já aftur að mér.

Ætli ég fari bara ekki að fá mér kaffi og vona svo að ég þufri bara að sækja um nýjann veflykill. En ég meina ef ég er látinn þá væri gaman að mæta í sína eigin jarðaför.... ;) hvaða fólk ætli mundi mæta og hvað þá segja. Ætli maður yrði minnst sem höfðingja já eða aumingja...

Hafi þið það gott þanngað til næst og ég vona að Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi Karl Lauritzson sé ekki búinn að skrá mig sem látin einstakling árið 2007.

8 Comments:

Blogger Dilja said...

Veiiii en gaman!!!! hahahahaha

22 mars, 2008 11:30  
Blogger Netfrænkan said...

Þarf maður þá að hafa samband við þig í gegnum Þórhall miðil í framtíðinni?

23 mars, 2008 20:25  
Blogger Halla og Ragna said...

Ok, ef þú ert dáinn hvernig í andsk.... fórum við eiginlega að því að flytja, kröftugur andi þarna á ferð hehe....

24 mars, 2008 00:02  
Blogger Hlynur Gauti Sigurðsson said...

To be or not to bee, a bee...

sko ég skil þig alveg, ég held að þú sért alveg látinn... afskiptalaust hjá skattayfirvöldum, nema af útvöldum, og einungis þeir munu mæta í jarðarförina, sem arfræningjar og uppvakningar en fyrst og fremst sem jafningjar, eins og ég sem skil hvorki upp né niður í öllu þessu, ofanjarðar né annað. Er maður Á kúpunni, eða Í? það er spurninging.

To bee or not to be ?

27 mars, 2008 01:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Djjöööööfulsinsssssniiiiiiiiiiiiiiiiiiilllllllddddd,
borið fram á Kebbblísku. He he
Kveðja Hjalti.

27 mars, 2008 13:58  
Blogger Hvar er Axel!!! said...

jæja búinn að fá frest þanngað til í dag.
Dilja: hæ já alltaf gaman

Guðlaug: já það er aldrei að vita nema þú verðir bara að tala við þórhall.

Halla og Ragna: það hlýtur að hafa verið kröftugur andi.

Hlynur: Ha!!

Hjalti: Dunkan prepster?

31 mars, 2008 04:45  
Blogger Arny said...

dííí... fáránlegt að lenda í þessu maður...!! hahahahaha..!!!

01 apríl, 2008 06:54  
Anonymous Nafnlaus said...

Bandstrikið maður, bandstrikið... ;) Lærðirðu það ekki í ME? Hilsen...
www.123.is/tinns

01 apríl, 2008 16:34  

Skrifa ummæli

<< Home